Samfélagið

Kosningar á Akureyri, strandveiðar, málfar og dýr á flótta

Við fræðumst um utankjörfundaratkvæðagreiðslur, fyrirkomulag þeirra og tilgang, heimsækjum utankjörfundarstað sýslumannsembættisins á Norðurlandi eystra á Akureyri og ræðum við sýslumanninn Svavar Pálsson og fleiri viðstadda.

Við forvitnumst um strandveiðar en strandveiðitímabilið hófst í byrjun mánaðar. Við ætlum slá á þráðinn til formanns strandveiðifélags Íslands, Kjartans Páls Sveinssonar sem rær frá Grundarfirði í sumar.

Við heyrum málfarsmínútu eins og lög gera ráð fyrir og í lok þáttar ætlar Vera Illugadóttir setjast hjá okkur og spjalla við okkur um dýr eins og svo oft.

Frumflutt

31. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Með Kvosarskipulaginu í miðborg Reykjavíkur breyttist ýmislegt, allt í einu voru komin borð og stólar utandyra við veitingastaði, og gestir gátu notið sólar og útiveru. Laugavegur er mestu göngugata og veitingastaðir hafa sett húsgögn útfyrir. Lögreglan hefur undanfarna viku verið reka gesti inn, vegna þess margir staðanna hafa ekki tilskilinn leyfi. Hvimleitt og erfitt því rekstur margra staðanna er á nippinu eftir covid. Aðalgeir Ásvaldsson er framkvæmdastjóri samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði

Samfélagið heldur áfram fjalla um máva í Garðabænum - Arnór Þ. Sigfússon fuglafræðingur spjallar við Arnhildi um Sílamáfinn sem er um margt forvitnilegur, samlíf manna og máfa, hvers konar ráð duga helst gegn ágengum máfum og hvernig máfurinn var hrakinn af Keflavíkurflugvelli á sínum tíma.

Við ætlum einnig kynna okkur sjálfbær fjármál og hvernig þau passa inn í myndina um sjálfbæra framtíð og sjálfbær samfélög. Öll þessi sjálfbærni kostar jú. Bjarni Herrera, sérfræðingur í sjálfbærni og sjálfbærum fjármálum, sem gaf nýverið út bók um þessi efnistök.

Þættir

,