Samfélagið

Ferðamennska í Grindavík, rúntur með slökkviliðinu, ráðstefna um líffræðilegan fjölbreytileika

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum viðraði í gær áhyggjur af því það vantaði upplýsingaskilti sem vöruðu ferðamenn við hugsanlegum hættum í og við Grindavík. Ferðamenn í útivistarfatnaði rölta um götur Grindavíkur, virða fyrir sér illa farin hús, skoða ljósmyndasýningu í Menningarhúsinu Kvikunni og sér í svanginn. Sumir eru á eigin vegum - aðrir í skipulögðum rútuferðum. Við ræðum ferðaþjónustuna í Grindavík í þætti dagsins, spjöllum við ferðamenn og gistihúsaeiganda sem þessa dagana er dytta gistiheimili sem hefur engan hýst í tæpt ár.

En umræður um aðgengi svæðum í grennd við gosstöðvar eru ekki nýjar af nálinni. Fyrir um tíu árum gaus í Holuhrauni, norðan Vatnajökuls, og var svæðinu þar í kring lokað, mörgum til nokkurrar óánægju. Samfélagið fjallaði um þessar lokanir á sínum tíma og við heyrum brot úr þeirri umfjöllun í dag.

Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, er þessa dagana stödd í Cali, þriðju stærstu borg Kólumbíu. Þar fer fram sextánda ráðstefna þeirra ríkja sem eiga aðild samningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni. Ráðstefnan var formlega sett í gær og ríkjanna bíður það verkefni samkomulagi um aðgerðir til þess vernda líffræðilegan fjölbreytileika jarðarinnar - sem á víða undir högg sækja - og þar með lífið sjálft. Þorgerður María er ein af 15 þúsund gestum sem eru viðstaddir ráðstefnuna og ætlar segja okkur frá því sem hún verður vitni þar næstu daga. Í dag heyrum við af ferðalaginu og setningunni.

Tónlist:

Una Torfadóttir - Það sýnir sig (Studio RUV).

Dina Ögon - Jag vill ha allt.

BSÍ - Vesturbæjar beach.

Frumflutt

22. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,