Samfélagið

E-efnasúpan, skautun og óöfundsverð staða ungra kjósenda

Þau binda, verja gegn rotnun, sýrustilla og kekkjaverja, gefa sætt bragð eða súrt og kannski fátt sem sameinar þau annað en þau eru táknuð með E-i, sem stendur fyrir Evrópu og ákveðnu númeri. Neyslusamfélagið kafar í dag ofan í E-efnasúpuna og leitar svara við spurningum dyggs hlustanda sem er með ofnæmi fyrir ákveðnu slíku efni. Í Mjólkursamsölunni kemur í ljós innihaldslýsing osts hefur breyst og í matvörubúðinni er E-efnaríkasta fæðan elt uppi.

Og við höldum áfram samtali okkar við Jón Gunnar Ólafsson og Huldu Þórisdóttur, stjórnmálafræðinga, um bók sem þau voru gefa út, sem heitir Lognmolla í ólgusjó. Bókin byggir á íslensku kosningarannsókninni og fjallar meðal annars um alþingiskosningarnar 2021 og íslenska kjósendur í áranna rás. Í dag fjöllum við um unga kjósendur, skautun í íslensku samfélagi, fjölmiðla og ýmislegt fleira.

Frumflutt

18. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,