Samfélagið

Viðhaldsmeðferðir, samgöngur, almenningssalerni og tvö þúsund útvörp á Akureyri

Í dag höldum við áfram fjalla um viðhaldsmeðferðir við ópíóíðafíkn, frá ýmsum hliðum. Í gær héldu skaðaminnkunarsamtökin Matthildur málþing um viðhaldsmeðferðir. Á þinginu voru ræddar meðferðir þar sem ópíóíðalyf eru notuð til meðhöndla ópíóíðafíkn. Svona meðferðir hafa verið veittar á Vogi um árabil og það eru mjög skýrar reglur um hvernig svona meðferðir eru veittar og hvaða lyf eru notuð. En þessar meðferðir, eins og þær eru veittar í dag, ekki til allra sem þurfa á þeim halda. Í dag fræðumst við um viðhaldsmeðferðir. Hvert er hlutverk lyfjafræðinga? Hvernig nálgast fangelsin viðhaldsmeðferðir? Hver er framtíð viðhaldsmeðferða á Íslandi?

Við hittum mann sem á yfir 2000 útvarpstæki. Hann er rafeindavirki mennt og eigin sögn alveg sjúkur safnari - safnar og gerir við gömul og falleg útvarpstæki, og ýmsar skyldar græjur. Við kíkjum á hluta safnkostsins á heimili hans á Akureyri og förum meira en hundrað ár aftur í tímann.

Síðan heyrum við í nýjum pistlahöfundi Samfélagsins. Það er hún Birgitta Björg Guðmarsdóttir rithöfundur. Í dag skrifar hún pistil um samgöngur og almenningsþjónustu, um mannflóruna sem birtist farþegum í strætó og um einkabílinn.

Frumflutt

26. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,