Samfélagið

15.05.2024

Krabbameinsskrá Íslands fagnar 70 ára afmæli í maí og af því tilefni verður blásið til afmælismálþings seinna í dag. Þetta er löng saga og ýmislegt sem hefur gerst og breyst á 70 árum. Þær Sigríður Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsókna- og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins og Laufey Tryggvadóttir, faraldsfræðingur og prófessor ræða þessi tímamót.

VIð fræðumst um íslensku nýsköpunarvikuna sem hófst í dag, hátíð sem laðar stórfiska úr heimi tækni og nýsköpunar en snertir líka á listum. Við ræðum við stofnendur hátíðarinnar, þær Eddu Konráðsdóttur og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur.

Edda Olgudóttir kemur svo í vísindaspjall í lok þáttar - hún segir okkur frá möguleikum crispr-tækninnar, meðal annars til þess lækna blindu.

Tónlist:

Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar, Ingibjörg Smith - liggur vel á mér.

TRAVIS - The Weight.

Beatles, The - While my guitar gently weeps.

Frumflutt

15. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Með Kvosarskipulaginu í miðborg Reykjavíkur breyttist ýmislegt, allt í einu voru komin borð og stólar utandyra við veitingastaði, og gestir gátu notið sólar og útiveru. Laugavegur er mestu göngugata og veitingastaðir hafa sett húsgögn útfyrir. Lögreglan hefur undanfarna viku verið reka gesti inn, vegna þess margir staðanna hafa ekki tilskilinn leyfi. Hvimleitt og erfitt því rekstur margra staðanna er á nippinu eftir covid. Aðalgeir Ásvaldsson er framkvæmdastjóri samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði

Samfélagið heldur áfram fjalla um máva í Garðabænum - Arnór Þ. Sigfússon fuglafræðingur spjallar við Arnhildi um Sílamáfinn sem er um margt forvitnilegur, samlíf manna og máfa, hvers konar ráð duga helst gegn ágengum máfum og hvernig máfurinn var hrakinn af Keflavíkurflugvelli á sínum tíma.

Við ætlum einnig kynna okkur sjálfbær fjármál og hvernig þau passa inn í myndina um sjálfbæra framtíð og sjálfbær samfélög. Öll þessi sjálfbærni kostar jú. Bjarni Herrera, sérfræðingur í sjálfbærni og sjálfbærum fjármálum, sem gaf nýverið út bók um þessi efnistök.

Þættir

,