Samfélagið

Ástin í Bíó Paradís, mótmæli við Reykjanesbraut og ADHD

Bíó Paradís býður þeim sem leita ástarinnar koma á hraðstefnumót. Markmið stefnumótanna er gefa einhleypum tækifæri á kynnast nýju fólki á léttum og skemmtilegum kvöldum. Í október var tvisvar blásið til hraðstefnumóta og þær Ása Baldursdóttir og Lisa Attenberger frá Bíó Paradís ætla koma og segja okkur allt um þau.

Síðan ætlar Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kíkja til okkar. Í dag ætlar hún rifja upp með okkur opnun Reykjanesbrautar, sem var formlega opnuð, með bundnu slitlagi, í október 1965 og í fréttaauka frá þeim degi heyrum við af mótmælendum gegn veggjaldi sem var innheimt til standa straum af gerð vegarins.

ADHD-samtökin og Sjónarhóll héldu málþing síðastliðinn föstudag. Yfirskrift þess var krefjandi hegðun barna með ADHD og markmiðið var auka þekkingu og skilning á helstu þáttum sem ýta undir krefjandi hegðun og beina sjónum gagnreyndum aðferðum sem nýtast til draga úr áhrifum þeirra. Aukin þekking og skilningur getur dregið úr krefjandi hegðun, stutt við betri líðan og jákvæðari sjálfsmynd hjá barninu sem og þeim sem barninu koma. Jóna Kristín Gunnarsdóttir og Elín Hinriksdóttir frá ADHD-samtökunum settust niður með okkur fyrir helgi.

Frumflutt

3. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: [email protected]

Þættir

,