Samfélagið

Forvarnir og hættuleg endurkoma reykinga, koma ungversks flóttafólks 1956

Reykingar virðast njóta aukinnar hylli í dægurmenningu - frægt fólk í Hollywood sportar sígarettum á almannafæri, svokallaðir sígarettuáhrifavalda, cigfluencers, hafa skotið upp kollinum á samfélagsmiðlum og síðastliðið ár komu reykingar fyrir í 9 af hverjum 10 kvikmyndum sem tilnefndar voru til stærstu Óskarsverðlaunanna. Blaðamenn tala um áhrif tísku og einhvers konar afturhvarf til kæruleysislegs nautnalífernis fyrri tíma. Við ætlum ræða þetta, sögu reykinga og áhrif þeirra við Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlækni á Landspítala og prófessor í læknisfræði, en hann gaf nýlega út fræðslu- og forvarnakverið Hættu alveg.

Svo kemur Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV til okkar, við ætlum fara með henni aftur til ársins 1956, þegar stjórnvöld hér tóku á móti hópi ungverskra flóttamanna, rétt fyrir jól. Högni Torfason, fréttamaður ríkisútvarpsins, fékk fara með sækja hópinn og lýsti öllu sem fyrir augu bar af mikilli nákvæmni.

Tónlist í þættinum:

ERIC BURDON & WAR, ERIC BURDON & WAR - Tobacco Road.

THE DOORS, THE DOORS - Break on Through (To the Other Side).

Moustaki, Georges - Le Métaque.

Frumflutt

16. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,