Samfélagið

Kynjuð áhrif heimsfaraldurs, ráðstefnan í Kólumbíu gerð upp, forsetakosningar í Bandaríkjunum og málfarsspjall

Heimsfaraldurinn kollvarpaði tímabundið starfi framhaldsskóla, í mars 2020, þegar samkomubann var sett á var farið kenna allt í fjarkennslu, um haustið var hert og slakað á víxl og skólastarfið var sífellt aðlaga sig. Hvaða áhrif hafði þetta á kennara? Nokkrir fræðimenn við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hafa undanfarið rannsakað þetta í þaula og safnað fjölbreyttum gögnum. En stærsta ein stærsta niðurstaðan kom eins og blaut tuska í andlitið á þeim. Súsanna Margrét Gestsdóttir, kennari, sagnfræðingur,lektor við Menntavísindasvið og ein rannsakendanna kemur til okkar núna rétt á eftir og greinir meðal annars frá ólíkum áhrifum ráðstafananna sem gerðar voru vegna faraldursins á konur og karla í kennarastétt.

Síðustu daga og vikur höfum við fengið heyra innslög frá Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar, þar sem hún hefur sagt frá dvöl sinni í Cali í Kólumbíu. Hún sótti þangað ráðstefnu aðildarríkja rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika. Þetta er risastór viðburður þar sem fulltrúar ríkjanna koma saman og setja sér alls konar markmið og gera alls konar áætlanir. En hvernig er það vera á svona ráðstefnu. Næst einhver raunverulegur árangur? Gera þessar ráðstefnur eitthvað gagn? Við fáum Þorgerði Maríu til okkar í spjall um þetta og margt fleira.

Spennan vex vestanhafs. Róbert Jóhannsson, fréttamaður á erlendu deildinni ræðir við okkur um kosningarnar í Bandaríkjunum.

Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins, spjallar við okkur um tökuorð.

Tónlist í þættinum:

BEAR THE ANT - Hey!.

Höst, Lene, Airana, Miriam - Sanfona Sentida.

BSÍ - Lily (hot dog).

Frumflutt

5. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,