Samfélagið

Opið samtal, íðorðabankinn, málfar og þorrablót í heita pottinum

Við ætlum ræða um lýðræði, umræðuhefð og samtöl. Borgarbókasafnið hefur í nokkur ár boðað til Opins samtals um ýmis málefni, fólk getur þá komið og speglað sig í samborgurum sínum og rætt málin. Dögg Sigmarsdóttir, verkefnastjóri Borgaralegrar þátttöku á Borgarbókasafninu, ætlar ræða þetta fyrirbæri, opið samtal, við okkur hér rétt á eftir.

Við kynnum okkur Íðorðbanka Árnastofnunar en hlutverk hans er meðal annars safna fræðiheitum og sameina þau þannig ekki séu á kreiki mörg heiti um sama fyrirbærið. Og í bankanum eru um áttatíu orðasöfn, þar á meðal nýjasta safnið, sem er íðorðasafn í efnafræði. Við ræðum íðorð við Ágústu Þorbergsdóttur ritstjóra íðorðabankans.

Við heyrum málfarsmínútu og svo skellum við okkur á Þorrablót, og það ekkert venjulegt þorrablót. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV rifjar upp sögulegt þorrablót sem fór fram á óvenjulegum stað,í heita pottinum í Laugardalslaug.

Frumflutt

29. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Með Kvosarskipulaginu í miðborg Reykjavíkur breyttist ýmislegt, allt í einu voru komin borð og stólar utandyra við veitingastaði, og gestir gátu notið sólar og útiveru. Laugavegur er mestu göngugata og veitingastaðir hafa sett húsgögn útfyrir. Lögreglan hefur undanfarna viku verið reka gesti inn, vegna þess margir staðanna hafa ekki tilskilinn leyfi. Hvimleitt og erfitt því rekstur margra staðanna er á nippinu eftir covid. Aðalgeir Ásvaldsson er framkvæmdastjóri samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði

Samfélagið heldur áfram fjalla um máva í Garðabænum - Arnór Þ. Sigfússon fuglafræðingur spjallar við Arnhildi um Sílamáfinn sem er um margt forvitnilegur, samlíf manna og máfa, hvers konar ráð duga helst gegn ágengum máfum og hvernig máfurinn var hrakinn af Keflavíkurflugvelli á sínum tíma.

Við ætlum einnig kynna okkur sjálfbær fjármál og hvernig þau passa inn í myndina um sjálfbæra framtíð og sjálfbær samfélög. Öll þessi sjálfbærni kostar jú. Bjarni Herrera, sérfræðingur í sjálfbærni og sjálfbærum fjármálum, sem gaf nýverið út bók um þessi efnistök.

Þættir

,