• 00:02:39Samfélagsmiðlar, fjölmiðlar, lýðræðishrun
  • 00:22:44Viðtal við Fidu Abu Libdeh
  • 00:47:45Vísndaspjall með Eddu Olgudóttur

Samfélagið

Lýðræðishrun á útvarpsþingi, Palestínumenn á Íslandi og vísindaspjall um kefír og múmíur

Hið árlega Útvarpsþing var haldið hér í útvarpshúsinu í dag. Því lauk núna rétt áður en við hófum útsendingu. Á þinginu er fjallað um ýmislegt sem snýr fjölmiðlum, og kannski sérstaklega Ríkisútvarpinu. Í ár var yfirskrift þingsins fjölmiðlar og fræðsla Við fáum til okkar tvö þeirra sem héldu erindi á þinginu, Skúla Braga Geirdal, verkefnastjóra hjá Fjölmiðlanefnd og Ingunni Láru Kristjánsdóttur, fréttamann og verkefnastjóra fréttaþjónustu á samfélagsmiðlum RÚV. Þeirra erindi fjölluðu einna helst um samfélagsmiðla, í breiðum skilningi. Við ræðum við þau hér í upphafi þáttar.

Hvernig upplifa Palestínumenn hér á Íslandi orðræðu og umfjöllun um árásir Ísraelsmanna á Gaza og Líbanon? Við ræðum við Fidu Abu Libdeh, stofnanda og framkvæmdastjóra nýsköpunarfyrirtækisins Geosilica. Hún fylgist með hryllingnum í heimalandinu úr fjarlægð.

Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, ræðir kefír og múmíur í spjalli dagsins.

Tónlist:

Hjálmar - Allt er eitt.

HATARI - Klefi _ Samed (ft. Bashar Murad).

Frumflutt

3. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Pétur Magnússon.

Netfang: [email protected]

Þættir

,