• 00:02:40Lífsferilsgreining bygginga
  • 00:20:07Er barnamatur góður matur?
  • 00:47:21Páll Líndal umhverfissálfræðingur

Samfélagið

Lífsferill bygginga, barnamatur og pistill Páls Líndal

Við ætlum tala um það sem er kallað lífsferilsgreining bygginga en slík greining verður hluti af byggingarreglugerð þar sem mælt verður kolefnisspor mannvirkja yfir lífsskeið þeirra. Og er formlega hafið aðlögunartímabil vegna breytinganna sem taka gildi 1. September 2025 - eftir eitt og hálft ár. Það verður seint sagt byggingareglugerðir séu einfaldar - þær eru mjög flóknar en við ætlum ræða þessar tilteknu breytingar við tvo sérfræðinga í þessum málum hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun; Þóru Margréti Þorgeirsdóttur framkvæmdastjóra mannvirkja og sjálfbærni og Elínu Þórólfsdóttur, arkitekt og sérfræðing í vistvænni mannvirkjagerð.

Í flestum verslunum er hægt finna litríkt svæði með tilbúnum mat ætluðum börnum - kívískvísur, jarðarberja- og bananasnakk, maísmauk og grautarmjöl. Rannsóknir sýna markaður með þennan mat er síkvikur - framboðið breytist ár frá ári og sykurmagnið - það eykst. Birna Þórisdóttir, lektor í næringarfræði við HÍ, hefur síðastliðin ár gert sér ferðir í verslanir og tekið út barnamatsganginn, talið vörur og skoðað innihaldslýsingar. Hún ræðir við okkur á eftir.

Við heyrum svo pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi í lok þáttar.

Frumflutt

2. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Með Kvosarskipulaginu í miðborg Reykjavíkur breyttist ýmislegt, allt í einu voru komin borð og stólar utandyra við veitingastaði, og gestir gátu notið sólar og útiveru. Laugavegur er mestu göngugata og veitingastaðir hafa sett húsgögn útfyrir. Lögreglan hefur undanfarna viku verið reka gesti inn, vegna þess margir staðanna hafa ekki tilskilinn leyfi. Hvimleitt og erfitt því rekstur margra staðanna er á nippinu eftir covid. Aðalgeir Ásvaldsson er framkvæmdastjóri samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði

Samfélagið heldur áfram fjalla um máva í Garðabænum - Arnór Þ. Sigfússon fuglafræðingur spjallar við Arnhildi um Sílamáfinn sem er um margt forvitnilegur, samlíf manna og máfa, hvers konar ráð duga helst gegn ágengum máfum og hvernig máfurinn var hrakinn af Keflavíkurflugvelli á sínum tíma.

Við ætlum einnig kynna okkur sjálfbær fjármál og hvernig þau passa inn í myndina um sjálfbæra framtíð og sjálfbær samfélög. Öll þessi sjálfbærni kostar jú. Bjarni Herrera, sérfræðingur í sjálfbærni og sjálfbærum fjármálum, sem gaf nýverið út bók um þessi efnistök.

Þættir

,