Samfélagið

Stefna um móttöku skemmtiferðaskipa, „leikskólavandinn“ í fjölmiðlum, málfar og Graf Zeppelin.

Það koma hátt í 200 þúsund farþegar með skemmtiferðaskipum til Ísafjarðar á þessu ári. Sem hlýtur teljast ansi mikill fjöldi en í Ísafjarðarbæ búa um fjögur þúsund manns. hefur Ísafjarðarbær unnið gerð stefnu um móttöku skemmtiferðaskipa og kallar eftir athugasemdum vegna hennar á vef sínum. Samfélagið mælti sér mót við hafnarstjórann Hilmar K. Lyngmo og ræddi þessi mál við hann.

Greining á fjölmiðlaumfjöllun um leikskóla á árunum 2020–2023 gefur skýrt til kynna hart er tekist á um framtíð leikskólakerfisins á Íslandi.

Við ætlum fjalla um leikskóla, umönnunarbilið, heimgreiðslur og mammviskubit. Sunna Símonardóttir, nýdoktor og aðjúnkt í félagsfræði við Háskóla Íslands, kemur til okkar en hún hefur undanfarið greint umfjöllun fjölmiðla um leikskólavandann svokallaða.

Við heimsækjum líka Þjóðskjalasafn Íslands og ræðum þar við Hans Hreinsson skjalavörð um stórt verkefni sem hann er vinna í þessa dagana. Póstsendingar með loftskipinu Graf Zeppelin koma þar við sögu meðal annars.

Tónlist:

KK OG MAGNÚS EIRÍKSSON - Hudson Bay.

Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).

Frumflutt

19. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélagið

Samfélagið

Með Kvosarskipulaginu í miðborg Reykjavíkur breyttist ýmislegt, allt í einu voru komin borð og stólar utandyra við veitingastaði, og gestir gátu notið sólar og útiveru. Laugavegur er mestu göngugata og veitingastaðir hafa sett húsgögn útfyrir. Lögreglan hefur undanfarna viku verið reka gesti inn, vegna þess margir staðanna hafa ekki tilskilinn leyfi. Hvimleitt og erfitt því rekstur margra staðanna er á nippinu eftir covid. Aðalgeir Ásvaldsson er framkvæmdastjóri samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði

Samfélagið heldur áfram fjalla um máva í Garðabænum - Arnór Þ. Sigfússon fuglafræðingur spjallar við Arnhildi um Sílamáfinn sem er um margt forvitnilegur, samlíf manna og máfa, hvers konar ráð duga helst gegn ágengum máfum og hvernig máfurinn var hrakinn af Keflavíkurflugvelli á sínum tíma.

Við ætlum einnig kynna okkur sjálfbær fjármál og hvernig þau passa inn í myndina um sjálfbæra framtíð og sjálfbær samfélög. Öll þessi sjálfbærni kostar jú. Bjarni Herrera, sérfræðingur í sjálfbærni og sjálfbærum fjármálum, sem gaf nýverið út bók um þessi efnistök.

Þættir

,