• 00:00:00Kynning
  • 00:00:13Eldarnir miklu í Kaliforníu
  • 00:06:39Raforkuverð
  • 00:14:00Strandveiðar þurfi 14.000 tonn
  • 00:19:36Kveðja

Spegillinn

Birta Líf um skógareldana í Los Angeles, raforkuverð til garðyrkjubænda og strandveiðar

Í Los Angeles eru heilu hverfin rjúkandi rústir og önnur standa enn í björtu báli í ógnarmiklum skógar- og gróðureldum sem færast enn í aukana. Minnst tíu hafa látið lífið í eldunum, tugir þúsunda hafa misst heimili sín, hátt í tvö hundruð þúsund manns hefur verið gert yfirgefa heimili sín og hundruð þúsunda hafa fengið tilmæli um búa sig undir þurfa flýja með litlum fyrirvara. Ævar Örn Jósepsson tekur við og ræðir við Birtu Líf Kristinsdóttur veðurfræðing.

Talsvert hefur verið fjallað um raforkuverð til garðyrkjubænda, það hækkaði um fjórðung um áramótin og Axel Sæland, formaður þeirra , spáði því í nóvember verð á íslensku grænmeti gæti hækkað um 12 prósent í framhaldinu. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við sveitarstjóra Bláskógabyggðar og framkvæmdastjóra Friðheima.

Framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda telur í ljósi reynslunnar gæti þurft um 14.000 tonn til uppfylla þörfina í 48 daga strandveiðivertíð. Þau ár sem dagafjöldi var leyfður hafi sjósóknin verið um 26 dagar meðaltali. Líta ætti á breytt strandveiðkerfi sem tilraun til næstu fimm ára og meta því loknu áhrif þess á þorskstofninn.

Frumflutt

10. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,