• 00:00:00Kynning
  • 00:00:16Eldgos í Sundhnúksgígaröðinni
  • 00:11:48Skoðanakannanir og áreiðanleiki
  • 00:19:51Kveðja

Spegillinn

Eldgos á Reykjanesskaga og áreiðanleiki skoðanakannana

29. maí 2024 - Eldgos og skoðanakannanir

Eldgos sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni laust fyrir klukkan eitt miðvikudaginn 29. maí er það fimmta á rúmu hálfu ári eða síðan Grindavíkurbær var rýmdur 10. nóvember þegar kvikugangur myndaðist undir bænum. Þrjár vikur voru þá liðnar frá því lokum fjórða gossins var formlega lýst yfir. Í millitíðinni höfðu um tuttugu milljónir rúmmetra af kviku safnast í kvikuhólfið undir Svartsengi og hafði kvikan aldrei verið meiri frá því þessi kafli umbrotanna á Reykjanesskaga hófst. Það kom því fáum vísindamönnum á óvart eldgosið í dag skyldi vera svona kraftmikið. Freyr Gígja Gunnarsson stiklar á stóru í atburðarás síðustu tæplega sjö mánaða og Ævar Örn Jósepsson ræðir nýjasta gosið við Benedikt Ófeigsson, fagstjóra aflögunar á Veðurstofu Íslands.

Kjördagur nálgast óðfluga og í aðdraganda kosninga verður vart þverfótað fyrir fréttum af skoðanakönnunum á gengi forsetaframbjóðenda. Kannanirnar eru nokkuð misvísandi og það þarf líka reikna af nokkurri list til fram niðurstöðu. Í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur segir Agnar Freyr Helgason dósent við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands það helst vera tvennt, sem veldur því niðurstöður ólíkra kannana séu ekki alveg sambærilegar.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

29. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,