Spegillinn

Bág staða láglaunakvenna, orlof og orðræða Trumps

Heimsk, brjáluð, kommmúnísk og stórkostlega vanhæf kona sem hlær furðulega. Þetta er meðal þess sem Donald Trump hefur sagt um Kamölu Harris, mótherja sinn í forsetakosningunum vestanhafs. Við ætlum rýna í talsmáta Trumps og þær áhyggjur sem samflokksmenn hans hafa af orðfæri hans.

Við fjöllum líka orlof hjá æðstu embættismönnum eins og sveitastjórum, borgarstjóra og fyrrverandi forsætisráðherra. Hvernig eru ráðningarsamningarnir hjá bæjarstjórum stærstu sveitarfélaganna?

Láglaunakonur á Íslandi hafa minna félagslegt bakland en tekjuhærri konur. Þær eru líklegri en aðrar konur til sinna heimilinu miklu meira en makinn, þær meta heilsu sína verri en konur með meiri menntun og eru líklegri til þjást af kvíða eða þunglyndi. Og tekjulágar konur eiga erfiðara með barnapössun og slá nákomna um lán ef þær verða fyrir óvæntum útgjöldum.

Frumflutt

16. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,