• 00:00:18Fjölmiðlafrelsi og -helsi
  • 00:10:57Kjörstjórn undirbýr kosningar

Spegillinn

Sveitarstjórnarkosningar og dvínandi fjölmiðlafrelsi

Hart er sótt frelsi og sjálfstæði fjölmiðla í heiminum. Stjórnvöld og stórfyrirtæki, auðkýfingar og einvaldar, glæpagengi og löggæslustofnanir víða um heim taka þátt í þessari aðför og sækist hún giska vel. Þannig reiknast sérfræðingum alþjóðlegu V-Dem - rannsóknastofnunarinnar í lýðræðismálum, sem er með höfuðstöðvar sínar í Gautaborgarháskóla, svo til fjölmiðlafrelsi hafi minnkað um tíu prósent á síðustu rúmlega tíu árum. Niðurstöður nýjustu rannsóknar alþjóðlegu samtakanna Blaðamenn án landamæra eru á svipuðum nótum.

Á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardaginn eru 302.688 manns. Það er kosið í 57 sveitarfélögum, kjörstaðir eru 129 og kjördeildirnar 293. Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar skrifaði í grein á Vísi um helgina ekki væri fjarri lagi áætla 1.400 til 1.500 manns yrðu störfum í kjördeildum á laugardaginn. Og fjöldi þeirra sem komi með einum eða öðrum hætti undirbúningi og framkvæmd kosninganna hlaupi á þúsundum og handtökin séu nánast óteljandi.

Birt

11. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,