Spegillinn

Svandís í beinni, (Ó)jöfnuður á stór-höfuðborgarsvæðinu

Umboðsmaður Alþingis sendi í dag frá sér það álit frestun hvalveiða síðasta sumar hafi ekki verið í samræmi við lög um hvalveiðar. Rætt var við Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra í beinni útsendingu í Speglinum.

Ójöfnuður í ráðstöfunartekjum jókst talsvert í Reykjavík á útrásaráraunum en dróst svo snarlega saman strax í kjölfar hrunsins. Hann jókst svo lítillega aftur milli áranna 2010 og 2022, en þó minna en ætla mætti af þjóðfélagsumræðunni. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri rannsókn sem Kolbeinn Hólmar Stefánsson vann fyrir Reykjavíkurborg.

Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður Kormákur Marðarson.

Frumflutt

5. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,