Spegillinn

Búvörulög og hæfi þingmanna, gróðureldar í Brasilíu

Alþingi samþykkti í mars búvörulög. Lögin veita miklar undanþágur frá samkeppnislögum og vegna þessara laga getur Kaupfélag Skagfirðinga keypt Kjarnafæði Norðlenska - stærsta kjötvinnslufyrirtæki landsins. Meðferð meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis á málinu hefur verið gagnrýnd. Lagafrumvarpið gjörbreyttist í meðförum nefndarinnar. Gunnhildur Kjerúlf birgisdóttir ræðir við Hafstein Dan Kristjánsson, lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Pantanal heitir stærsta, samfellda hitabeltisvotlendi heims og líffræðilegur fjölbreytileiki er óvíða meiri. Pantanal er á heimsminjaskrá UNESCO og nýtur verndar samkvæmt Ramsar-samningnum um vernd mikilvægs votlendis. Það teygir sig yfir um 170.000 ferkílómetra lands í Bólivíu, Paragvæ og, stærstum hluta, í Brasilíu - þar sem það stendur í ljósum logum. Ævar Örn Jósepsson segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Markús Hjaltason

Frumflutt

9. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,