9 og 10 ára börn of mikið á samfélagsmiðlum og Áslaug Arna um gervigreind
80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Þetta sýna niðurstöður nýrra Lýðheilsuvísa landlæknis sem kynntir voru í vikunni.
Landskjörstjórn er falið að sjá um kynningarefni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar síðsumars. Hún þarf að gæta hlutleysis og ekki er hægt að gefa afdráttarlaus svör við öllum spurningum sem vakna en það er mikilvægt að fólk taki ígrundaða afstöðu og kynni sér málin að mati Ástríðar Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra Landskjörstjórnar.
Íslenska fyrirtækið Teledyne Gavia, sem eitt sinn hét Hafmynd - hefur í vaxandi mæli sótt inn á markaði fyrir búnað sem nýttur er bæði í borgaralegum og hernaðarlegum tilgangi.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.