• 00:00:07Afstaða fólks til flóttafólks
  • 00:09:15Grindavíkurhöfn, miðin og framtíðin

Spegillinn

Afstaðan til flóttafólks og staðan í Grindavík

Árið 2023 var tólfta árið í röð sem flóttafólki í heiminum fjölgaði. Hartnær 120 milljón manns voru á flótta í fyrra, þar af um 47 milljónir barna undir 18 ára aldri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Í gær, á alþjóðlegum degi flóttafólks, kynnti Flóttamannastofnunin niðurstöður alþjóðlegrar könnunar, þar sem ríflega 33 þúsund manns í 52 löndum víðsvegar um heiminn voru beðin taka afstöðu til fjölmargra atriða varðandi fólk á flótta.

Ein meginniðurstaða könnunarinnar var sú, nær þrír af hverjum fjórum þátttakendum, 73 prósent, voru sammála þeirri fullyrðingu fólk á flótta undan stríðsátökum og ofsóknum eigi geta leitað skjóls í öðrum löndum, þar á meðal í heimalandi svaranda. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Nínu Helgadóttur hjá Rauða krossinum.

Í þættinum er einnig rætt við Pétur Hafstein Pálsson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Vísis, um stöðuna í Grindavík og af hverju hann er bjartsýnn á framhaldið þrátt fyrir stöðuna í dag.

Frumflutt

21. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,