Spegillinn

Gliðnun á sprungum frá Krýsuvík til Hólmsheiðar, Ólympíuleikar, útilokanir og öryggisgæsla

Áhrif umbrotanna á suðvestanverðum Reykjanesskaganum síðustu misseri teygja sig víða, eins og Benedikt Sigurðsson komst þegar hann hitti Halldór Geirsson jarðeðlisfræðing máli í Búrfellsgjá, skammt suðaustur af Vífilsstaðavatni, sem liggur þvert á það sem kallast sprungusveimur Krýsuvíkureldstöðvakerfisins. Í honum eru virkar gliðnunarsprungur sem teygja sig nokkra tugi kílómetra til norðausturs. Við skoðun á gervitunglamælingum fyrir nokkrum árum tóku jarðvísindamenn eftir nokkurra millimetra hreyfingum á þessum sprungum, segir Halldór, og frekari rannsóknir sýndu aukna gliðnun á allra síðustu árum, eftir yfirstandandi umbrot hófust.

Þrítugustu og þriðju Ólympíuleikar nútímans voru settir í París í Frakklandi í dag. Þetta er í þriðja skipti sem Ólympíuleikar eru haldnir í París, þar sem þeir voru fyrst haldnir aldamótaárið 1900 og svo aftur fyrir réttri öld, 1924. Keppnisviðburðir eru 329 í 32 íþróttagreinum og keppendur 10.714 frá 206 ríkjum - en ekki Rússlandi og Belarús. Tíu þjóðir hafa áður verið útilokaðar frá leikunum og gagnrýnt hefur verið Ísrael skuli ekki hafa verið meinuð þátttaka þessu sinni. Ævar Örn Jósepsson segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

26. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,