Spegillinn

Fíkniefnum smyglað um hafnir, kosningar í Brandenburg og fílar

Óttast er minni hafnir í Evrópu verði í meira mæli notaðar til smygla stórum sendingum af fíkniefnum í vöruflutningagámum. Á Íslandi er aðeins brotabrot af öllum þeim þúsundum gáma sem hingað eru fluttir gegnumlýstir í rúmlega sextán ára gömlum skanna.

Jafnaðarmannaflokkur Olafs Scholz kanslara Þýskalands, SPD, slapp kannski með skrekkinn í kosningum í Brandenburg um helgina en Scholz ekki, dómi stjórnmálaskýranda.

Rúmlega 200.000 fílar lifia á verndarsvæði sem teygir sig til fimm landa í sunnanverðri Afríku; Angóla, Namibíu, Botsvana, Sambíu og Simbabve. Í síðastnefnda landinu er talið fílarnir séu um 84.000 talsins og þar hyggjast stjórnvöld fella um 200 dýr á næstunni þetta á gera til grisja stofninn lítillega og metta fólk sem sveltur á þurrkasvæði með kjötinu.

Frumflutt

23. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,