• 00:00:00Kynning
  • 00:00:29Trump og Grænland
  • 00:05:57Rafeldsneyti
  • 00:13:23Fangelsismálastofnun
  • 00:19:21Kveðja

Spegillinn

Trump og Grænland, rafeldsneyti og fjármál fangelsismálastofnunar

Í gær átti Donald Trump yngri stutt stopp í Nuuk á Grænlandi. Þessi litla heimsókn hefur aðallega vakið athygli vegna yfirlýsinga föðurins, Donalds Trumps verðandi Bandaríkjaforseta fyrir nokkrum vikum um það væri alveg nauðsynlegt fyrir öryggi Bandaríkjanna og frið í heiminum Grænland tilheyrði Bandaríkjunum. Slíkar hugmyndir hafði Trump viðrað áður 2019 og ekki voru undirtektir jákvæðar í Danmörku þá frekar en nú. Hinn verðandi forseti sagðist í gær tilbúinn beita afli gegn Dönum ef þeir mögluðu, og útilokaði reyndar ekki þegar blaðamaður spurði hvort til greina kæmi beita hervaldi. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta og ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur prófessor í alþjóðastjórnmálum, sem segir þótt ekki beri taka orð Trumps bókstaflega, þá fyllsta ástæða til taka þau alvarlega.

Í raforkuspá fyrir næstu 25 ár gerir Landsnet ráð fyrir stóraukinni þörf á orku til framleiðslu rafeldsneytis. Tvö stór verkefni eru í undirbúningi ár sem ætlunin er nota vindorku til framleiða vetni og ammoníak. Gnýr Guðmundsson, forstjóri kerfisþróunar hjá Landsvirkjun, segir þróun rafeldsneytis ganga hægt, eftirspurnina vera óvissa og mörgum spurningum enn ósvarað. Gréta Sigríður Einarsdóttir tók saman.

Það vakti nokkra athygli í haust þegar starfandi fangelsismálastjóri boðaði nokkuð umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir hjá stofnuninni. Ástæðan var 8 milljóna króna gat í fjármögnun á rekstri stofnunarinnar. Í greinargerð sem sviðsstjóri reksturs og fjármála hjá Fangelsismálastofnun sendi dómsmálaráðuneytinu kemur fram rekstraráætlunin sem skilað var hafi sýnt ágæta niðurstöðu innan fjárveitingaramma - en . þegar fjárlagafrumvarpið hafði verið samþykkt hafi komið í ljós, „talsverður misskilningur“. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

8. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,