Íslendingar eiga vasaljós og rafhlöður og telja sig almennt vel undir það búna að takast á við hamfarir, samkvæmt nýrri könnun hugveitunnar Vörðu. Hins vegar virðist vanta töluvert upp á raunverulegan undirbúning og mat á því hvaða hamfarir gætu orðið og hvers konar undirbúning þær gætu kallað á.
Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og ræðir við þá Kristin Hrobjartsson og Runólf Þórhallsson.
Í dag höfðu 1.854 kosið utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Þetta eru nærri tvöfalt fleiri en á sama tíma 2022, þegar 942 höfðu kosið. Það eru tvær og hálf vika til kosninga og vinna við undirbúning stendur því sem hæst. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Sigríði Jóhannesdóttur, sem situr í yfirkjörstjórn Langanesbyggðar.
Það er ekki aðeins á alþjóðasviðinu sem sótt er að mannréttindum með markvissum hætti. Síauknar árásir eða í það minnsta aðfarir yfirvalda í hinum ýmsu ríkjum að frelsi og réttindindum eigin borgara eru Amnesty líka mikið áhyggjuefni og þessi þróun er langt í frá bundin við ríki sem Vesturlandabúar vilja skilgreina sem einræðis- eða valdstjórnarríki. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Önnu Lúðvíksdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Birt
28. apríl 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.