Spegillinn

Biden eða ekki Biden? Demókratar í úlfakreppu

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sækist eftir endurkjöri. Biden hefur ár um áttrætt, og þrátt fyrir nokkrar efasemdaraddir um svo aldraður maður ætti erindi í Hvíta húsið í fjögur ár til viðbótar fór hann í gegnum forvalið hjá Demókrötum án minnstu mótspyrnu og er frambjóðandi flokksins til þessa valdamikla embættis - ennþá.

Á hátíðarfundi NATO í gær kynnti hann heiðursgestinn Volodymyr Zelenskyy á svið sem Pútín forseta, og á blaðamannafundinum í kjölfarið talaði hann um varaforsetann Trump, þegar hann ætlaði vísa í varaforseta sinn, Kamölu Harris.

Jón Óskar Sólnes hagfræðingur býr í Washington og fylgist vel með Bandarískum stjórnmálum. Ævar Örn Jósepsson spurði Jón Óskar út í umræðuna í höfuðborg Bandaríkjanna um stöðu forsetanns.

Frumflutt

12. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,