Spegillinn

Eldvarnir, ópíóíðafaraldur, náttúruvá og friðlýst svæði

Spegillinn 13.04. 2023

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórnandi fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Slökkviliðið telur brýnt auknar heimildir til skoða íbúðarhúsnæði í útleigu. Dæmi eru um leigjendur veigri sér við því kvarta vegna ónógra brunavarna af ótta við missa húsnæðið. Tveir starfshópar innviðaráðuneytisins hafa unnið útfærslu á tillögum um úrbætur í þessum efnum síðan í apríl 2022.

Valgerður Rúnarsdóttir, forstjóri Vogs og framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir á hverjum degi innritist tveir einstaklingar til meðferðar vegna ópíóíðafíknar og fólkið sem ánetjist slíkum lyfjum yngra en áður hafi þekkst. Íslenskur læknir hefur verið sviptur réttindum til ávísa ópíóíðalyfjum eftir hann varð uppvís því ávísa morfíni og oxýkódini í kílóavís til eins sjúklings.

Fimmtán starfsmönnum rússneska sendiráðsins í Ósló verður vísað úr landi fyrir njósnir á næstunni. Umfjöllun norrænu ríkisfréttamiðlanna um njósnir Rússa á Norðurlöndum hefst í næstu viku.

Flestar kóngulær eru einfarar - en þó ekki allar. Fundist hafa tegundir sem teljast til svokallaðra félagskóngulóa - og lifa margar saman í sátt og samlyndi.

Óvenjuvænn þorskur hefur ratað í net færeyskra sjómanna undanfarið, eftir nokkur mögur ár. Dæmi eru um allt 23 kílógramma þorskar hafi veiðst.

----------

Nýverið birti Umhverfisstofnun skýrslu um mat sérfræðinga sinna á ástandi 146 áfangastaða ferðafólks innan friðlýstra svæða, þar á meðal í Vatnajökulsþjóðgarði og Þjóðgarðinum á Þingvöllum. Hver staður fær heildareinkunn á bilinu 0 - 10 út frá niðurstöðum mats á fjölmörgum þáttum, og einkunn segir til um hvort og þá hve mikil hætta á staðurinn missi verndargildi sitt. Kristín Ósk Jónasdóttir fer fyrir teymi náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun. Hún segir niðurstöðurnar bara giska jákvæðar.

Náttúruvá eykst hér á landi og við því þarf bregðast. Skortur á sérhæfðu starfsfólki verður mikil áskorun fyrir ríkisstofnanir sem sinna eftirliti og rannsóknum. Viðbótarkostnaður vegna náttúruvár nemur 8,1 milljarði frá árinu 2008.Þetta kemur fram í skýrslu sem kynnt var 13.04., þar sem fjallað er um náttúruvá frá ýmsum sjónarhornum. Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir margt skýra aukna náttúruvá.

Íbúum í Sapporo og fleiri borgum á Hokkaídó-eyju í Japan brá mörgum hverjum í brún þegar loftvarnaflautur voru þeyttar laust fyrir klukkan hálf átta morgni fimmtudags. Þegar flauturnar þögnuðu heyrðist rödd sem skipaði fólki leita skjóls. Ástæðan

Frumflutt

13. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,