• 00:00:00Kynning
  • 00:00:23Stýrivextir
  • 00:08:32Fanga og sleppa, sleppa og fanga
  • 00:12:16Umfjöllun um orlofsgreiðslur
  • 00:19:26Kveðja

Spegillinn

Stýrivextir, enskir óeirðaseggir og orlofsgreiðslur sveitarstjóra

Seðlabankinn ákvað í dag halda stýrivöxtum óbreyttum, í 9,25 prósentum. Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ segir það vonbrigði Seðlabankinn skuli ekki hafa þorað stíga inn í þann spíral sem við erum í. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir marga krafta halda verðbólgunni uppi. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við þau um tíðindi dagsins.

Búið er dæma um fimm hundruð bullur og óeirðaseggi fyrir sinn þátt í óeirðum í Bretlandi í byrjun mánaðarins, og hundruð til viðbótar bíða dóms. Vandinn er það er ekkert pláss fyrir þá í fangelsum landsins.

Uppgjör á orlofi Dags B. Eggertssonar sem borgarstjóra er ekki einsdæmi þegar skoðuð eru starfslok sveitarstjóra í öðrum stórum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Lára V. Júlíusdóttir érfræðingur í vinnumarkaðsrétti segir ekki óalgengt stjórnendur safni upp orlofi enda nánast gert ráð fyrir þeir séu alltaf á vaktinni. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um málið og ræðir við Láru.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

21. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,