Spegillinn

Skaftárhlaup, bankaskýrsla, regnbogatröppur skemmdar, loðdýrarækt

Rennsli eykst enn í Skaftá, en hægt hefur á aukningunni. Búið er loka Hólaskjóli - hálendismiðstöðinni. Enn er óljóst úr hvorum Skaftárkatli hleypur. Rætt var við Áróru Bryndísi Ásgeirsdóttir sem starfar í Hólaskjóli og Þorstein Þorsteinsson, sérfræðing í jöklarannsóknum á Veðurstofunni.

Vaxtamunur hefur ekki minnkað þrátt fyrir bætta afkomu og minni rekstrarkostnað bankanna. Gjaldskrár eru óskýrar og oft óljóst fyrir hvað fólk er borga.

Skógareldarnir í Grikklandi eru þeir mestu innan Evrópusambandsins frá aldamótum.

Regnbogatröppur á Akureyri voru spreyjaðar svartar í nótt. Þetta er í annað skipti á þremur dögum sem skemmdarverk hafa verið unnin á regnbogaskreyttum gönguleiðum.

Linda Björk Pálsdóttir forvarna- og félagsmálaráðgjafi hjá Akureyrarbæ telur hugsanlegt innblástur af verknaðinum hafi verið fenginn af svipuðu skemmdarverki á höfuðborgarsvæðinu um helgina.

Svifryksmengun er alvarlegasta heilsufarsógnin sem steðjar jarðarbúum segir í nýrri skýrslu um ástand loftslagsmála í heiminum. Ef dregið yrði úr henni sem næmi markmiðum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar lengdi það ævi þeirra um 2,3 ár meðaltali.

Viðskiptabankarnir þrír hafa heilt yfir náð fram verulegri hagræðingu í starfsemi sinni og arðsemi bankanna er núna almennt nokkuð hærri en hjá bönkum af svipaðri stærðargráðu á öðrum Norðurlöndunum. Og vaxtamunur bankanna er mun meiri hér en þar. Erfitt getur verið fyrir neytendur átta sig á hvaða þjónustu þeir eru kaupa. Þetta eru meginniðurstöður starfshóps sem Lilja Alferðsdóttir viðskiptaráðherra skipaði fyrir ári, til skoða um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna.

Ragnhildur Thorlacius ræddi við Breka Karlsson formann Neytendasamtakanna sem sat í starfshópinum.

Fuglaflensa hefur komið hart niður á loðdýrabúum í Finnlandi. Hennar hefur orðið vart á um 25 búum og þegar er búið lóga öllum dýrum á þeim, meira en 120 þúsund minkum og refum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Einar Eðvald Einarsson á Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Hann er formaður loðdýradeildar Bændasamtakanna. Einar hefur ekki miklar áhyggjur af fuglaflensa berist í loðdýr hér, aðstæður á búunum séu aðrar.

Umsjónarmaður var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Jón Þór Helgason. Annalísa Hermannsdóttir stjórnaði fréttaútsendingu.

Frumflutt

29. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,