• 00:00:08Kílómetragjaldið

Spegillinn

Núverandi kerfi olíu- og bensíngjalda skilar ekki lengur nægum tekjum

Hærra hlutfall rafmagnsbíla og sparneytnari dísil-og bensínbíla hefur orðið til þess tekjur stjórnvalda af olíu- og bensíngjöldum hafa dregist saman um 30% frá 2012, á sama tíma og umferð hefur aukist um 50% og álag á vegi sama skapi. Nánast ekkert var greitt fyrir akstur á rafmagns- og tengiltvinnbílum en það breyttist um áramótin þegar tekið var upp gjald, 6 krónur á kílómetra fyrir rafmagns og vetnisbíla en 2 krónur fyrir tengiltvinnbíla. Auka á jafnræði og sanngirni með nýju kerfi um næstu áramót þar sem tekið verður kílómetragjald af öllum farartækjum í hlutfalli við þyngd þeirra, segir Ragnar Bjartmarz, verkefnastjóri Verkefnastofu um samgöngugjöld.

Frumflutt

18. júlí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,