Spegillinn

Verkbann, nándarhryðjuverk og kynferðisofbeldi áhrifavalda

Samtök atvinnulífsins samþykktu verkbann á alla félaga í Eflingu með miklum meirihluta atkvæða. Verkbann tekur gildi eftir rúma viku.

Lögreglustjórinn á Austurlandi hvetur fólk á svæðinu til þess auka meðvitund sína um mögulegt Öskjugos og kynna sér leiðbeiningar.

Leiðtogar níu Atlantshafsbandalagsríkja í Austur-Evrópu heita hver öðrum stuðningi ef hernaðarógn steðjar í ríkjum þeirra. Þeir hittust á fundi í Varsjá í dag.

Næsta Me-too vakning þyrfti varpa ljósi á ofbeldi í nánum samböndum, mati prófessors við Háskólann á Akureyri. Hún segir of margar konur hér á landi búa við lífshættulegt ofbeldi sem haldið leyndu ævilangt.

Minningargreinar eru bókmenntaverk og því ekki hægt birta þær hluta eða heild nema með leyfi höfundar. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness vegna skrifa Mannlífs upp úr minningargrein sem birtist í Morgunblaðinu.

-----

Leiðtogar níu NATÓ-ríkja í Austur-Evrópu, eða Búkarest níu hópurinn svonefndi, kom saman í Varsjá í Póllandi í dag í tilefni þess senn er eitt ár liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Sérstakir gestir leiðtogafundarins voru Joe Biden Bandaríkjaforseti og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATÓ.Búkarest-hópurinn var settur á laggirnar undirlagi Pólverja og Rúmena eftir Rússar innlimuðu Krímskagann árið 2015. Auk þeirra eru í hópnum Eistland, Lettland, Litháen, Ungverjaland, Slóvakía, Tékkland og Búlgaría. Þau eru ýmist fyrrverandi hluti af Sovétríkjunum eða voru með þeim í Varsjárbandalaginu, hernaðarbandalagi kommúnistaríkja í Austur-Evrópu á dögum kalda stríðsins.

Prófessor við Háskólann á Akureyri telur þörf á vakningu hér á landi um alvarlegustu tegund ofbeldis í nánum samböndum, svokölluð nándarhryðjuverk. Í nýrri rannsókn sögðu íslenskar konur frá lífshættulegu ofbeldi af hendi maka síns í fyrsta sinn.

Einni helstu samfélagsmiðlastjörnu Svíþjóðar hefur verið hent út af Youtube, vegna kynferðislegra tilburða gagnvart barnungum aðdáendum. Áhrifavaldurinn var með hátt í tvö hundruð þúsund fylgjendur þar, en hefur flutt sig á aðra samfélagsmiðla.

Umsjón: Bjarni Rúnarsson.

Tæknimaður: Mark Eldred.

Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Frumflutt

22. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,