• 00:00:08Evrópuþingið - viðbrögð i Brussel og uppgangur hæg
  • 00:12:43Akstur undir áhrifum slævandi lyfja

Spegillinn

Kosningar til Evrópuþings og akstur undir áhrifum slævandi lyfja

Rúmlega helmingur af þeim 360 milljónum Evrópusambandsbúa sem voru á kjörskrá neyttu atkvæðisréttar síns og kusu í Evrópuþingskosningunum. Helsta niðurstaðan er flokkar sem skipa sér nálægt miðju og til hægri við hana fengu mest fylgi en þjóðernissinnaðir hægriflokkar styrktu stöðu sína, mest í Frakklandi þar sem flokkur forsætisráðherrans galt afhroð. Hann hefur boðað til þingkosninga eftir nokkrar vikur og þykir djarflega teflt.

44% fleiri ökumenn voru stöðvaðir í fyrra en árið á undan vegna gruns um vera undir áhrifum örvandi eða deyfandi lyfja. Þetta sýna tölur sem ríkislögreglustjóri tók saman fyrir Spegilinn. Á meðan hefur fjöldi þeirra sem teknir eru undir áhrifum ávana- og fíkniefna nánast staðið í stað - tölurnar eru samt sem áður ískyggilega háar - nærri sautján hundruð á síðasta ári. Ríkissaksóknari flytur á næstu dögum mál fyrir Hæstarétti þar sem tekist verður á um harðari refsingar fyrir akstur undir áhrifum slævandi lyfja.

Frumflutt

10. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,