Spegillinn

Sviss tekur líka afstöðu til ESB og samsæriskenningar um skógarelda

Ísland er ekki eina ríkið í Evrópu þar sem ætlunin er halda þjóðaratkvæðagreiðslu um tengsl við Evrópusambandið á næstu árum . Það sama mun gerast í Sviss - mögulega um svipað leyti og hér á landi - eftir stjórnvöld þar samþykktu nýjan heildarsamning um samskipti og viðskipti Sviss og Evrópusambandsins.

Ekki eru allar kenningar um upptök eldana í Los Angeles jafn vel rökstuddar og á samfélagsmiðlum hefur fjöldi samsæriskenninga þar lútandi litið dagsins ljós. Ein útbreiddasta, er kenningin um eldarnir hafi verið kveiktir vísvitandi, ekki af einhverjum brennuvörgum úti í bæ, heldur nafnlausum aðilum á vegum hersins, leyniþjónustustofnana eða annarra leynilegra stofnana ríkisvaldsins eða djúpríkisins svonefnda.

Og það eru fleiri umdeildar framkvæmdir sem koma til kasta dómstóla en Hvammsvirkjun - til mynda Suðurnesjalína 2, hið eilífa þrætuepli.

Frumflutt

17. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,