Spegillinn

Bandaríkin og Venesúela, Úkraína og svar NTÍ við bréfi ráðuneytis

Náttúruhamfaratrygging Íslands óttast það skaði bæði traust og trúverðugleika hennar ef hún þurfi sækja bætur til sinna endurtryggjenda vegna kostnaðar við björgunaraðgerðir í Grindavík, eins og hugmyndir fjármálaráðuneytisins ganga út á. Þetta kemur fram í svarbréfi stjórnar stofnunarinnar sem hún sendi ráðuneytinu í september. Mörg ár hefði tekið byggja upp þetta samband og traust - ekki síst í ljósi náttúruhamfaranna í Grindavík, iðgjöld myndu hækka og erfitt yrði fyrir Náttúruhamfaratryggingu endurnýja eða finna tryggingafélög.

Bandaríkjastjórn hefur verið með Venesúela og stjórnvöld þar - og alveg sérstaklega forsetann Nicolás Madúró - í sigtinu síðustu mánuði, beitt miklum þrýstingi og jafnvel ofbeldi, samanber 22 árásir á báta meintra eiturlyfjasmyglara sem hafa kostað minnst áttatíu mannslíf frá því í september, feikistóra og öfluga flotadeild sem lónar rétt utan landhelgi Venesúela, bein áköll um afsögn forsetans og stjórnar hans og hótanir um alvarlegar afleiðingar ef hann situr áfram.

Afar flókin staða er uppi í viðræðum um vopnahlé og frið í Úkraínu þessa dagana. Stjórnvöld í Hvíta húsinu eru melta tillögur sem Úkraínuforseti og þrír aðrir evrópskir leiðtogar sendu fyrr í vikunni - og vangaveltur hafa verið uppi um hvort stjórnvöld í Kyiv fallist á gefa eftir landssvæði í austurhluta Úkraínu, þar sem Bandaríkjastjórn vill koma á hlutlausu svæði.

Frumflutt

12. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,