9 og 10 ára börn of mikið á samfélagsmiðlum og Áslaug Arna um gervigreind
80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Þetta sýna niðurstöður nýrra Lýðheilsuvísa landlæknis sem kynntir voru í vikunni.
Stefnt er að því að skrá Bláa Lónið hf. á markað í nóvember. Þá kemur í ljós hvert áætlað heildarandvirði félagsins er en forstjóri félagsins segir að í nýlegum viðskiptum með félagið hafi það verið metið á um 83 milljarða króna.
En við ætlum að byrja á viðbrögðum við niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem kynntar voru í gær.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.