Spegillinn

Æfing hjá neyðarstjórn, tetrakerfið og Tom Hagen

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar kom saman á dögunum til æfingar. Búið var til raunhæft verkefni fyrir embættismenn borgarinnar til æfa, kvikuhlaup og eldgos í nágrenni borgarinnar, þannig rýma þurfti heimili 6000 manna í efri byggðum. Ragnhildur Thorlacius forvitnaðist um æfinguna, sem er innblásin af veruleika Grindvíkinga.

Forsvarsmenn Neyðarlínunnar telja TETRA-talstöðvakerfið, sem viðbragðsaðilar við Eyjafjörð misstu samband við á dögunum, vera örugga fjarskiptaleið. Þeir stefna þó úrbótum til reyna tryggja stöðugri tengingar. Ólöf Erlendsdóttir

Tom Hagen hefur ekki lengur stöðu sakbornings, sagði Vibeke Schøyen, yfirmaður ákærusviðs lögreglunnar í Austur-Noregi á fréttafundi í morgun, nær sex árum eftir rannsókn á hvarfi konu Hagens hófst. Eftir umfangsmikla rannsókn, sagði Schøyen, er ekkert sem sannar hann eigi þátt í hvarfi eiginkonu sinnar frá heimili þeirra hjóna 31. október 2018. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið.

Frumflutt

18. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,