Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar kom saman á dögunum til æfingar. Búið var til raunhæft verkefni fyrir embættismenn borgarinnar til að æfa, kvikuhlaup og eldgos í nágrenni borgarinnar, þannig að rýma þurfti heimili 6000 manna í efri byggðum. Ragnhildur Thorlacius forvitnaðist um æfinguna, sem er innblásin af veruleika Grindvíkinga.
Forsvarsmenn Neyðarlínunnar telja TETRA-talstöðvakerfið, sem viðbragðsaðilar við Eyjafjörð misstu samband við á dögunum, vera örugga fjarskiptaleið. Þeir stefna þó að úrbótum til að reyna að tryggja stöðugri tengingar. Ólöf Erlendsdóttir
Tom Hagen hefur ekki lengur stöðu sakbornings, sagði Vibeke Schøyen, yfirmaður ákærusviðs lögreglunnar í Austur-Noregi á fréttafundi í morgun, nær sex árum eftir að rannsókn á hvarfi konu Hagens hófst. Eftir umfangsmikla rannsókn, sagði Schøyen, er ekkert sem sannar að hann eigi þátt í hvarfi eiginkonu sinnar frá heimili þeirra hjóna 31. október 2018. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið.
Frumflutt
18. okt. 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.