Spegillinn

Snjóflóð í Neskaupstað og verkföll og mótmæli í Ísrael

Hættustig almannavarna vegna snjóflóða er í gildi í þremur bæjum á Austfjörðum. Þrjú snjóflóð féllu í Neskaupstað snemma í morgun. Ólíkar tilfinningar vakna hjá Norðfirðingum í kjölfar flóðsins. Sum muna Norðfirðingar muna sumir eftir mannskæðum snjóflóðum þar í bænum fyrir tæpum 50 árum.

Snjóflóðin í Neskaupstað féllu utan við varnargarða bæjarins. Viðbætur eru á teikniborðinu en stranda á fjármagni.

Karlmaður frá Rúmeníu hefur stefnt íslenska ríkinu og krefst fimm milljóna í bætur. Hann kom til Íslands til vinna við þakviðgerðir með tengdaföður sínum en var eftirlýstur af lögreglu og bendlaður við glæpagengi.

Stúlka á táningsaldri vopnuð tveimur rifflum og skammbyssu varð sex bana í grunnskóla í Nashville í Bandaríkjunum í dag. Nærri níutíu árásir hafa verið gerðar í bandarískum grunnskólum það sem af er ári.

Umdeildu frumvarpi Ísraelsstjórnar var mótmælt harkalega í dag. Allsherjarverkfall hófst í landinu og sendiráðum var lokað. Frumvarpið átti færa stjórnvöldum aukin völd yfir dómstólum. Afgreiðslu þess var frestað síðdegis.

----

Í morgun féllu snjóflóð í Neskaupstað. Blessunarlega varð ekki manntjón í flóðunum en nokkrir hlutu minni háttar áverka þegar flóð lenti á fjölbýlishúsi í Starmýri. Mikil ofankoma og vindur er fyrir austan og mikil snjóflóðahætta víða á Austfjörðum, til mynda á Seyðisfirði, Eskifirði og víðar. Hús voru rýmd í Neskaupstað og Eskifirði. Flóðin sem lentu í byggð féllu úr Nesgili og Bakkagili en stór flóð hafa áður fallið úr þessum giljum. Norðfirðingar hafa áður þurft takast á við náttúruöflin. Alls hafa 17 manns látist í snjóflóðum í Neskaupstað í þremur flóðum, árin 1885, 1974 og 1978. Árið 1974 varð mannskæðasta flóðið í bænum þar sem 12 manns fórust og fjórtán var bjargað, ýmist af eigin rammleik eða voru grafin upp. Slík sár gróa seint og sambýlið við náttúruna er samofið í huga Norðfirðinga. Í hádegisfréttum var sagt frá því í fjöldahjálparstöð sem opnuð var í Egilsbúð meðal annars fólk sem man eftir flóðunum 1974 og það ýfi upp gömul sár vera komin aftur á þann stað við svona aðstæður.

"Atvinnurekendur og launþegar um gjörvallt Ísraelsríki. Komum í veg fyrir breytingar á lögum um dómstóla. Stöðvum þetta brjálæði," sagði Arnon Bar-David, formaður Histadrut, landsambands verkalýðsfélaga, þegar hann tilkynnti í morgun allsherjarverkfall væri brostið á í landinu. Fljótlega tilkynntu fleiri stéttarfélög um þau hefðu lagt niður störf, þar á meðal landssamband ísraelskra hjúkrunarfræðinga. Frá deginum í dag ætla þeir einungis sinna neyðartilvik

Frumflutt

27. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,