
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Ljóst varð í morgun að ríkisstjórnin ætlaði sér að setja lög á verkfall flugvirkja hjá Icelandair. Ekki kom þó til þess því flugvirkjar aflýstu verkfallinu. Icelandair og flugvirkjar lýstu því yfir að næstu fjórar vikur yrðu nýttar til markvissra viðræðna samkvæmt verkstýrðri áætlun ríkissáttasemjara. En þó að verkfallið hafi verið stutt, hafði það töluverðar afleiðingar. Rætt við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson, prófessor og Finnbjörn A. Hermannsson forsta Alþýðusambands Íslands.
Bæði viðskiptaþvinganir Vesturlanda gegn Rússlandi og svo ýmsar skorður sem Rússar leggja sjálfir á fjölmiðlun og fjarskipti í landinu gera það að verkum að fyrir erlent fjölmiðlafólk er erfitt að ferðast til Rússlands og að senda þaðan fréttir um lífið í landinu eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Jón Björgvinsson fréttaritari RÚV fékk þó vegabréfsáritun til að fylgjast með nýafstöðum þingkosningum, í Moskvu.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.