• 00:00:12Hvað er í húfi pólitískt á laugardag
  • 00:08:00Skattahækkanir á baðlón
  • 00:14:21Hiti, þurrkur og vínuppskeran

Spegillinn

Leyft öllum aldurshópum

Hvað er í húfi á laugardag? skattahækkanir á baðlón og áhrif hita og þurrka á vínuppskeru

Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB á laugardag hefur áhrif á pólitískt landslag á Íslandi, hvort sem svar þjóðarinnar verður já eða nei. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur fer nú yfir þau mál með okkur.

Forsvarsmenn baðlóna hér á landi hafa gagnrýnt harkalega þá hugmynd að hækka virðisaukaskatt úr 11% í 24% á þeirra starfsemi. Slíkt er inn í áformum ríkisstjórnarinnar sam samþykkti hallalausa fjármálaáætlun fyrr í sumar.

Það líður að hausti og vínuppskeru í Frakklandi. Nema í ár er hún víða langt komin, löngu á undan hefðbundinni áætlun. Hiti, vatnsskortur og skógareldar gera vínbændum lífið leitt – en ekki er þar með sagt að vín ársins verði verri eða dýrari.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,