9 og 10 ára börn of mikið á samfélagsmiðlum og Áslaug Arna um gervigreind
80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Þetta sýna niðurstöður nýrra Lýðheilsuvísa landlæknis sem kynntir voru í vikunni.
Hvaða áhrif kann aðild að Evrópusambandinu að hafa á íslenska launþega? Svarið við þeirri spurningu er kannski ekki einfalt. Nær öll löggjöf Evrópusambandsins um réttindi launþega hefur þegar verið tekin upp á Íslandi í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Hrafnhildur Kristinsdóttir lögfræðingur ræðir vinnurétt.
Farsóttasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er nánast tilbúinn en fæst ekki samþykktur. Alma Möller, heilbrigðisráðherra, ræðir málið.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.