9 og 10 ára börn of mikið á samfélagsmiðlum og Áslaug Arna um gervigreind
80% barna í 4.-5. bekk nota samfélagsmiðla, þrátt fyrir að hafa ekki aldur til. Þetta sýna niðurstöður nýrra Lýðheilsuvísa landlæknis sem kynntir voru í vikunni.
Evrópubúar eru að kikna undan skæðri hitabylgju síðustu daga. Sérfræðingar segja að sambærileg hitabylgja hafi aldrei geta orðið fyrir fimmtíu árum. Halldór Björnsson, loftslagssérfræðingur Veðurstofunnar, ræðir ástæðurnar.
Milljónir biðu í ofvæni eftir því að forsala á nýjustu útgáfu tölvuleiksins Grand Theft Auto hæfist. Bjarki Þór Jónsson, tölvuleikjafræðingur, útskýrir hvers vegna.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.