Eldhúsdagur, innleiðing farsældarlaga gagnrýnd og fleiri pólitískir bæjarstjórar
Almennar stjórnmálaumræður eða eldhúsdagur er á Alþingi eins og venja er undir þinglok. Samkvæmt dagskrá á síðasti þingfundur vorsins að vera á föstudag en litlar líkur eru taldar á því að það gangi eftir. Þingið var frekar rólegt fram eftir vetri en andtinn breyttist þegar farið var að ræða um þjóðaratkvæðagreiðslu sem verður síðsumars.
Umboðsmaður barna segir að enn vanti úrræði fyrir börn sem þurfi mest á samþættri þjónustu og sérúrræðum að halda. Það hafi því miður ekki tekist að tryggja þau með innleiðingu laga um farsæld barna. Ríkisendurskoðandi telur innleiðingu laganna ófullnægjandi. María Sigrún Hilmarsdóttir ræðir við Salvöru Nordal, umboðsmann barna.
Það hefur sveiflast nokkuð í gegnum árin hvort sveitarfélög velji að ráða ópólitíska bæjarstjóra eftir sveitarstjórnarkosningar eða hvort þessir framkvæmdastjórar sveitarfélaganna komi úr röðum kjörinna fulltrúa. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, segir það frekar bundið við stærstu sveitarfélögin að fara þá leið að ráða pólitískan bæjarstjóra.
Birt
10. júní 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.