• 00:00:36Fæðingartíðni og ástæður
  • 00:08:52Fjölmiðlafrelsi á Íslandi

Spegillinn

Leyft öllum aldurshópum

Lækkandi fæðingartíðni og eilítið vaxandi fjölmiðlafrelsi á Íslandi

Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar hefur fæðingartíðni aldrei mælst lægri hér á landi. Árið 2025 fæddust að meðaltali 1,56 börn á hverja konu. Fyrir aðeins rúmum áratug hafði sú tala aldrei farið niður fyrir 1,93 börn. Að óbreyttu þýðir þessi fæðingartíðni fólksfækkun. Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og talar við Ara Klæng Jónsson ogSigríði Ingibjörgu Ingadóttur.

Blikur eru á lofti í heimi fjölmiðla og fréttamennsku í henni veröld, þar sem valdhafar, glæpagengi, stórfyrirtæki, dóms- og löggæslustofnanir vinna leynt og ljóst að því að skerða tjáningar- og fjölmiðlafrelsi. Góðu fréttirnar fyrir okkur eru þær að Ísland færist upp um 5 sæti á nýútgefnum lista yfir fjölmiðlafrelsi í ríkjum heims. Það eru góðar fréttir, sem segja þó ekki alla söguna. Ævar Örn Jósepsson talar við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formann Blaðamannafélags Íslands.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,