• 00:00:00NATO
  • 00:05:30Ungar borgir - aldnar sveitir
  • 00:13:14Orkuskipti í landbúnaði

Spegillinn

NATO, ungar borgir - aldnar sveitir, orkuskipti í landbúnaði

Bandaríkjaforseti hefur undanförnu skaðað trúverðugleika Nato meira á nokkrum vikum en Rússlandsforseti hefur náð gera á margra ára tímabili. Þetta er mat Petr Pavel Tékklandsforseta og fyrrverandi hershöfðingja og formanns herforingjaráðs NATO á stöðunni sem upp er komin innan bandalagsins eftir árás Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran. Pavel segir gagnrýni Trumps ósanngjarna. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið.

Aldursdreifing Norðurlandabúa er breytast, frjósemi minnkar og hefur aldrei verið minni, og þeir eldast hratt. Borgirnar seiða til sín yngra fólk og innflytjendur en þeir eldri verða eftir í sveitunum. Fólksfjölgun hefur verið mun meiri í þéttbýlinu. Þóroddur Bjarnason prófessor segir þá greiningu ekki eiga við öllu leyti hér. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann.

Orkuskipti í landbúnaði var til umfjöllunar á vefþingi sem haldið var í dag, þar sem íslenskir og erlendir þátttakendur veltu fyrir sér hvaða tækifæri felast í slíkum orkuskiptum fyrir íslenskan landbúnað. Ottó Elíasson er framkvæmdastjóri Eims, sem einblínir á orku-, auðlinda-, og loftslagsmál, Ágúst Ólafsson talar við hann.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Birt

9. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,