• 00:00:00Heilsa
  • 00:00:22Stjórnmál
  • 00:07:13Líforkuver gleymt ofan í skúffu
  • 00:13:02Íslensk aðlögun að loftslagsbreytingum
  • 00:19:51Kveðja

Spegillinn

Leyft öllum aldurshópum

Leikhlé á þing, viðbrögð Íslands við loftslagsbreytingum og verksmiðja sett í skúffu

Kjördæmavika hefst í næstu viku og þá má segja að þingmenn taki leikhlé, hitti kjósendur, fari yfir hvað hafi verið gert og hvað eigi eftir að gera. Magnús Geir Eyjólfsson, þingfréttaritari RÚV, býst við miklum spretti fram í maí þegar gert verður hlé vegna sveitastjórnarkosninga.

Nærri þriggja milljarða króna líforkuver sem til stóð að reisa við Eyjafjörð, hefur verið sett á ís og vefsíðu þess verið lokað. Þegar hafa farið tugir milljóna í undirbúning verkefnisins.

Evrópska loftslagsráðið leggur þunga áherslu á að tryggja verði fjármögnun nauðsynlegra rannsókna og aðgerða, og að horft verði til fyrirsjáanlegra loftslagsáhrifa við alla stefnumótun og lagasetningu. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofunni segir ekki tekið á fjármögnuninni í íslensku aðlögunaráætluninni, en að þótt bæta megi íslenskt regluverk verulega hvað þetta varðar, þá sé víða horft til loftslagsbreytinga í því, einkum á sviði skipulagsmála.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,