• 00:00:08Utanríkisráðherra og Evrópa
  • 00:07:32Nær 100 árásir á örugg svæði á Gaza
  • 00:13:10Utankjörfundaratkvæðii

Spegillinn

ESB-umsókn, árásir Ísraelshers á „örugg svæði“ á Gaza, meðferð utankjörfundaratkvæða

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir jákvætt Evrópusambandið líti þannig á aðildarumsókn Íslands frá 2009 enn virk. Talsmaður framkvæmdastjórnar ESB staðfesti þetta í dag - en Þorgerður átti síðdegis fund með Maros Sefcovic, einum af framkvæmdastjórum ESB, sem fer með viðskiptamál og samskiptin við EES ríkin, Ísland, Noreg og Lichtenstein. Þorgerður hitti einnig Kaju Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Björn Malmquist fréttamaður hitti Þorgerði síðdegis.

Frá því í maí í fyrra hefur Ísraelsher gert minnst níutíu og sjö árásir á svæði á Gaza, sem herinn hafði áður skilgreint sem svokölluð mannúðarsvæði og hvatt palestínskan almenning til leita þar skjóls til tryggja öryggi sitt og sinna. Þetta er niðurstaða rannsóknarteymis breska ríkisútvarpsins BBC, BBC Verify, sem hefur unnið því undanfarna mánuði sannreyna fregnir af slíkum árásum. Ævar Örn Jósepsson rýnir í skýrslu teymisins.

Í þremur tilfellum sem fjallað hefur verið um síðustu daga komust utankjörfundaratkvæði í alþingiskosningunum ekki til skila. Í Kópavogi urðu 25 utankjörfundaratkvæði innlyksa á bæjarskrifstofum og var ekki komið til talningar, í Norðausturkjördæmi fékk yfirkjörstjórn kassa með atkvæðum 11 dögum eftir kosið var og ekki er vitað hve mörg þau voru, og tvö utankjörfundaratkvæði skiluðu sér ekki frá Seltjarnarnesi á talningarstað. Í kosningum er alltaf eitthvað um utankjörfundaratkvæði berist ekki í tæka tíð - En er hægt horfa til einhverra sérstakra kringumstæðna og telja atkvæði sem koma of seint? Anna Kristín Jónsdóttir ræddi þetta við Bergþóru Sigmundsdóttur lögfræðing og stjórnmálafræðing, sem lengi um utankjörfundaratkvæðagreiðslu hjá sýslumanni.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Frumflutt

15. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,