Spegillinn

Andlát ungrar konu á Skeggjagötu, nýr orkumálaráðherra um orkumál, öfgahægristjórn í kortunum í Austurríki

Tveir dómkvaddir matsmenn telja læknisfræðileg rannsókn vegna andláts ungrar konu eftir handtöku lögreglu hafi verið ófullkomin. Lögmaður fjölskyldu hennar segir ríkið verða bera hallann af því. Andlát hennar megi líkindum rekja til samspils tveggja þátta; ástands ungu konunnar og aðgerða lögreglu - en ómögulegt segja til um umfang áhrifa hvors orsakaþáttar fyrir sig. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá.

Orkuframleiðsla og orkunýting standa á krossgötum. Orkuframleiðendur anna ekki eftirspurn eftir orku og hart er deilt um nýja orkukosti. Í upphafi ráðherratíðar sinnar leggur Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra áherslu á þrjú atriði: Forgang almennings og minni fyrirtækja raforku án samkeppni við stórnotendur; liðka fyrir aukinni orkuöflun með einfölduðu leyfisveitingakerfi, og rjúfa kyrrstöðuna í tengslum við rammaáætlun. Gréta Sigríður Einarsdóttir tók saman og ræddi við Jóhann Pál.

Austurríski Frelsisflokkurinn eygir í fyrsta sinn möguleikann á leiða ríkisstjórn í landinu. Flokkurinn er lengst til hægri í stjórnmálum í Austurríki og vann stóran sigur í kosningunum þar í september. Björn Malmquist segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

9. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,