• 00:00:08Opin eða lokuð réttarhöld í kynferðisbrotamálum
  • 00:08:27HRW um Ísrael
  • 00:13:17Jólalag

Spegillinn

Réttarhöld í kynferðismálum, stríðsglæpir Ísraela og jólaleg jólalög

Meginregla er réttarhöld eru opin en venjan hér í kynferðisbrotamálum er þau séu lokuð til verja persónulega hagsmuni. Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari segir sterk rök fyrir því opna slík réttarhöld, vilji brotaþoli senda þau skilaboð hann hafi ekkert til skammast sín fyrir, líkt og hin franska Giselle Pélicot gerði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kolbrúnu.

Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Human rights watch, eða Mannréttindavaktin, sem eru með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum, bættust í dag í stækkandi hóp þeirra sem saka Ísraelsmenn um stórfelld mannréttindabrot, brot á alþjóðalögum og sáttmálum og alvarlega glæpi sem stappa nærri þjóðarmorði. Mannúðar- og mannréttindasamtökin Læknar án Landamæra komast svipaðri niðurstöðu í sinni skýrslu, sem líka kom út í dag. Ísraelar svara samtökunum eins og öllum öðrum sem saka þá um stríðsglæpi og þjóðarmorð, með ásökunum um lygar og gyðingahatur.

Hvað gerir jólalag jólalagi? Er það textinn sem er sunginn eða er til ákveðinn jólahljómur? Freyr Gígja Gunnarsson leitar svara við þeirri áleitnu spurningu hjá tónlistarmanninum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Frumflutt

19. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,