• 00:00:00Kynning
  • 00:00:29Jafnaldra flokkar í lykilstöðu
  • 00:07:24Þingmenn að loknum kosningum
  • 00:19:27Kveðja

Spegillinn

Viðreisn og Flokkur fólksins eru jafngamlir flokkar en ólíkir um margt, Þingmenn S og F um úrslitin á laugardag

Viðreisn og Flokkur fólksins eru lykilstöðu þegar kemur myndun næstu ríkisstjórnar eftir sögulegar þingkosningar á laugardag. Flokkarnir tveir eru næstum jafngamlir, voru stofnaðir með mánaðarmillibili vorið 2016 og skarta báðir ótvíræðum leiðtogum sem eru samofnir sögu þeirra en þeir eru ólíkir um margt. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði ræðir stöðu þeirra þegar kemur stjórnarmyndun.

Kosningarnar á laugardag voru um margt sögulegar. Sviptingar í fylgi flokka, tveir hurfu af þingi og aðrir í gerbreyttri stöðu. Samfylkingin stærst með 15 þingmenn, og Flokkur fólksins fékk tíu. Hann styrkti sig mjög ekki í síst í Suðurkjördæmi þar sem Ásthildur Lóa Þórsdóttir er fyrsti þingmaður kjördæmisins. Rætt við hana og Dag B. Eggertsson Samfylkingu um úrslitin útstrikanir, atkvæði sem greidd voru flokkum sem ekki komust og stjórnarmyndun.

Frumflutt

2. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,