• 00:00:00Kynning
  • 00:00:24Nafnlausu skrifin
  • 00:06:59Verkföll - Gylfi Dalmann
  • 00:14:16Lýðræði og alræðishyggja í Þýskalandi
  • 00:19:42Kveðja

Spegillinn

Uppgjör við blogg, verkföll og lýðræðið í Þýskalandi

Gömul bloggskrif Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingarinnar, sem birtust undir dulnefni á bloggsíðu fyrir rúmlega tuttugu árum hafa vakið upp umræðu um hvort nauðsynlegt gera upp það tímabil þegar nafnlaus skrif viðgengust í athugasemdakerfum fjölmiðla og bloggheimum. Skrif sem oft beindust nafntoguðum konum og þeir sem þannig skrifuðu þurftu fæstir bera á þeim ábyrgð. Þar til kannski nú.

Full þörf er á samræma vinnulöggjöf á almennum og opinberum markaði segir prófessor við Háskóla Íslands, ákvæði um verkföll séu til dæmis ekki þau sömu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Gylfa Dalmann Aðalsteinsson.

Þótt níu af hverjum tíu Þjóðverjum séu sannfærðir um lýðræði æskilegasta stjórnarfarið eru aðeins um fjórir af tíu ánægðir með hvernig það virkar í Þýskalandi um þessar mundir. Og nær tveir af hverjum tíu eru einhverju leyti sammála þeirri fullyrðingu, einræði geti verið betri valkostur „í ákveðnum aðstæðum.“

Frumflutt

15. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,